Quantcast
Channel: Íbúðahúsnæði til leigu
Viewing all articles
Browse latest Browse all 10725

Rúgakur 3, Garðabær, 158 fm: 200.000 kr.

$
0
0

Garðatorg eignamiðlun sími 545-0800 kynnir í leigu um miðjan janúar 2013
Rúgakur 3a (íbúð 101), Garðabæ. Kr. 205.000 á mánuði. 3ja mánaða bankatrygging

Falleg og vel skipulögð 132,7 fm 3ja herbergja endaíbúð á fyrstu hæð ásamt 25,3 fm geymslu í nýlegu fjölbýli á besta stað í Garðabæ, samtals 158 fm ásamt stæði í bílageymslu. Sérinngangur. Lyfta. Útsýni. Suður svalir. Góð aðkoma. Bílastæði malbikuð.

Þegar inn er komið tekur við flísalögð forstofa, skápar. Stofan er parketlögð sem og eldhúsið og borðstofan. Falleg innrétting í eldhúsi. Electrolux-tæki. Úr stofu er útgengt út á góðar suður svalir. Tvö parketlögð svefnherbergi með baðherbergi (baðkar og sturta) og fataherbergi í öðru en skápum í hinu. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, baðkar og innrétting. Þvottahúsið er samtengt baðherberginu m/innréttingu. Í heildina flott og mjög rúmgóð íbúð. Starfsmenn Garðatorgs sýna.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 10725


<script src="https://jsc.adskeeper.com/r/s/rssing.com.1596347.js" async> </script>