
Til leigu 212 fm efri hæð í tvíbýlishúsi auk geymslu og þvottahúsi í kjallara (17 fm). Leigjendur hafa sameiginleg afnot með neðri hæð af rúmlega 40 fm bílskúr.
Efri hæðin (jarðhæð) skiptist í forstofu, sólskála, stofu, eldhús, vinnuherbergi, þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi. Eitt svefnherberbergjanna er með innangengt á annað baðherbergið.
Efri hæðin hefur verið mikið endurnýjuð á seinustu árum á einkar smekklegan hátt.
Húsið stendur á 782ja fm lóð sem stendur á jaðri Akralalands aðskilið með grænu svæði og göngustíg.
Leiguverð er greitt fyrirfram og þriggja mánaða leigu er krafist sem tryggingu.
Leigutími er samkomulagsatriði en þar sem eignin er í söluferli er hægt að semja um 3-6 mánaða uppsagnarfrest.
Allar fyrirspurnir sendist á Jón Ingva í netfangið jon.ingvi@simnet.is