
Lítið sjarmerandi parhús við einstaklega skemmtilega og rólega götu í hjarta borgarinnar. Húsið er á tveimur hæðum, ásamt bakgarði. Húsnæðið er 3-4 herbergja og skiptist þannig: Á neðri hæð eru stofa, eldhús og lítið svefnherbergi. Á efri hæð eru baðherbergi, stórt svefnherbergi og lítið opið herbergi (notað sem vinnuherbergi).





