Quantcast
Channel: Íbúðahúsnæði til leigu
Viewing all articles
Browse latest Browse all 10725

Skipalón 23, Hafnarfjörður, 120 fm: 205.000 kr.

$
0
0

Ný og glæsileg fjögurra herbergja íbúð á þriðju hæð í fimm hæða fjölbýlishúsi með lyftu í Skipalóni í Hafnarfirði.

Gengið er inn í flísalagt anddyri. Stórt opið rými skiptist í eldhús og stofu. Þrjú rúmgóð svefnherbergi með fataskápum. Parket á gólfum. Flísalagt baðherbergi með baðkari. Rúmgott þvottahús er innan íbúðar.

Stæði í bílageymslu fylgir með íbúð.

Hiti er innifalinn í leiguverði en hússjóður (rekstrarkostnaður sameignar) og rafmagn greiðist af leigutaka.

Leigusali fer fram á tveggja mánaða tryggingu, framvísun sakavottorðs, meðmæli frá fyrri leigusala og staðfestingu á reglulegum tekjum.

Gæludýr og reykingar eru ekki leyfð innan íbúðar.

Sendið tölvupóst á netfangið almenna@almennaleigufelagid.is fyrir frekari upplýsingar.
________________________________________________
Almenna leigufélagið býður langtímaleigu íbúðarhúsnæðis, hátt þjónustustig, öryggi og sveigjanleika. Félagið annast útleigu um 400 íbúða sem staðsettar eru vítt og breitt um höfuðborgarsvæðið.

Kynnið ykkur úrval lausra íbúða á heimasíðu félagsins: www.almennaleigufelagid.is/


Viewing all articles
Browse latest Browse all 10725