
Miklaborg kynnir til leigu: Fallega og vel innréttaða 96,6 fm 3ja herbergja íbúð á efstu hæð í lyftuhúsi ásamt bílastæði í bílakjallara. Suðursvalir og glæsilegt útsýni. Íbúðin leigist í eitt ár og geta öll helstu húsgögn og tæki fylgt með.
íbúðin er opin og björt með fallegu útsýni og skiptist í tvö svefnherbergi, hol, stofu, eldhús, baðherbergi, forstofu og þvottahús. Einnig fylgir stæði í bílakjallara með íbúðinni.
Eingöngu reglusamt fólk kemur til greina og
reykingar og gæludýr eru ekki leyfð.
3 mánaða trygging og meðmæli.
Leiga á mánuði 200.000 með húsgjaldi.
Allar nánari upplýsingar gefur Svan Gunnar Guðlaugsson í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is