
Íbúðin er 2ja herbergja, 91 fm á 3ju hæð við Mánatún, mjög miðsvæðis. Íbúðin skiptist í svefnherbergi, hol með skrifborði, baðherbergi, þvottahús, eldhús/borðstofu og stofu. Parket á gólfum nema flísar á baði og þvottahúsi. Mikið skápapláss er í svefnherbergi.
Leigutími er frá einum til sex mánaða með möguleika á lengri leigu. Íbúðin er fullbúin húsgögnum með uppvottavél, ísskáp og eldhúsáhöldum. Þvottavél og þurrkari í þvottahúsi.
Sameign með mynddyrasíma í aðalanddyri, bílastæði í bílakjallara sambyggðum húsinu.
Leiguverð 240.000 kr. Hægt er að fá innifalið rafmagn, hita, ljósleiðara/nettengingu og kostnað við sameign, + 30.000 = 270.000. Íbúðin er reyklaus, aðeins traustir aðilar koma til greina. Leigutrygging eða bankaábyrgð fyrir leigu.