
Vönduð og falleg 3ja herbergja íbúð, 103 fm á 5. hæð í góðu húsi við Mánatún í Reykjavík. Eignin skiptist í forstofu, opið stofurými með borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi með sturtuklefa, þvottahús og geymsla innaf íbúð. Frá stofu er útgengi á góðar suðursvalir. Eigninni fylgir stæði í góðri bílageymslu ásamt geymslu. Parket og flísar á gólfum og gott skápapláss.
Hússjóður innifalinn í leigu.
Leigutími er eitt ár en með langtímaleigu í huga.
Skilyrði: Fyrirframgreiðsla einn mánuður og þriggja mánaða bankaábyrgð.