
Rentus leigumiðlun kynnir: Við Hjarðarhaga á 3ju hæð.
Mjög fallega 2ja til 3ja herbergja íbúð á 3 hæð ásamt herbergi í risi við Hjarðarhaga Reykjavík.
Mikið endurnýjum íbúð og verið að ljúka við viðgerðir á húsinu að utanverðu.
Íbúðin skiptist eftirfarandi:
Forstofa/hol með litlum skáp, pl. parket á gólfi
Eldhús með nýrri ljósri innréttingu og nýjum tækjum, borðkrókur, pl. parket á gólfi
Baðherbergi með baðkari m. sturtuaðstöðu, mosaik flísar í hólf og gólf
Svefnherbergi með stórum skápum, pl. parket á gólfi
Stofa er rúmgóð með pl. parketi á gólfi, útgangur útá suðvestur svalir frá stofu
Aukaherbergi með glugga í risi
Geymsla í kjallara og sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi í kjallara.
Mikið endurnýjuð íbúð t.d. nýlegar raflagnir og rofar, gólfefni, eldhúsinnrétting og fl.
- Leiguverð er kr. 150.000- á mánuði vísitölutryggt.
- Innifalið í leigu er hússjóður.
- Rafmagn er ekki innfalið í leigu.
- Beðið er um tryggingu í formi bankaábyrðar kr. 450.000-
- íbúðin leigist til langstíma (2ára).
- íbúðin er laus.
- Engin gæludýr leyfð.
Þessi eign er leigð, þökkum öllum sem hafa sýnt áhuga.
Allar upplysingar eyglog@domus.is