
Rentus leigumiðlun kynnir: Fallega og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð sem skiptist í forstofuhol, tvö herbergi, stofu, opið eldhús og baðherbergi.
Á hæðinni er sameiginlegt þvottaherbergi. Frábær staðsetning við KR völlinn.
Nánari lýsing: Komið er inn í forstofuhol. Herbergi með nýju parketi. Parketlögð stofa. Opið eldhús með fallegri innréttingu, parketi, flísar
á milli skápa og borðkrók. Baðherbergi er með baðkari, flísar við baðkar og gólfflísum. Rúmgott hjónaherbergi með nýju parketi, fataskáp
og eru svaladyr út á svalir. Á hæðinni er sameiginlegt þvottaherbergi og í kjallara er geymsla og sameiginleg hjólageymsla. Íbúðin er
skráð á 3.hæð en einungis er gengið upp eina hæð frá inngangi.
- búðin er leigð til 2 ára eða lengur
- leiguverð er kr. 160.000 vísitölutryggt+rafmagn
- Hússjóður innifalinn
- Bankaábyrð sem nemur 3 mánaðaleigu
- Engin gæludýr eru leyfð