101 Reykjavík fasteignasala og Hrafnhildur Björk lgfs. kynna: góða 3ja herbergja íbúð á 6. hæð í viðhaldslitlu og eftirsóttu lyftuhúsi ásamt bílastæði í lokaðri bílageymslu. Yfirbyggðar svalir. Íbúðarrýmið er skráð 97,5 fm hjá Þjóðskrá Íslands og geymslan 5,6 fm, samtals 103,1 fm.Fasteignamat eignarinnar fyrir árið 2019 verður 52.750.000 kr.
Íbúðin skiptist í: forstofu, þvottahús, baðherbergi, eldhús og stofu í opnu rými, 2 svefnherbergi, gluggalausa geymslu innan íbúðar, sérgeymslu í kjallara, bílastæði í lokaðri bílageymslu.
Nánari lýsing: gengið er inn í parketlagða forstofu sem er með fataskápum. Á hægri hönd er gengið inn í þvottahús, sem er með flísalögðu gólfi, stæði og tengi fyrir þvottavél og þurrkara og skolvaski. Við hlið þvottahússins er baðherbergi, sem er flísalagt í hólf og gólf, með innréttingu og sturtuklefa. Rýmið er gluggalaust. Stofan og eldhúsið eru í opnu rými. Eldhúsið er með L-laga innréttingu, neðri skápum og efri að hluta, flísar á milli innréttinga. Parket á gólfi. Stofan er björt og úr henni er gengið út á yfirbyggðar svalir sem eru með svalaparketi. Hjónaherbergið er parketlagt og með fataskápum. Aukaherbergið er parketlagt. Gluggalaus geymsla er innan íbúðarinnar og gæti hún nýst sem vinnuherbergi. Geymslan er parketlögð.
Sérgeymslaí kjallara.
Bílastæði í lokuðri bílageymslu.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla á jarðhæð.
Smelltu hér til að skoða grunnteikningu af eigninni.
Nánari upplýsingar um eignina veitir Hrafnhildur Björk Baldursdóttir löggiltur fasteignasali í gsm: 862-1110 eða email: hrafnhildur@101.is
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill fasteignasalan 101 Reykjavík því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Fylgstu með á facebook: 101 Reykjavík fasteignasalaogHrafnhildur Björk lgfs.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2000 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 50.200 kr.