Til langtíma leigu er falleg og óvenju björt 55 fermetra tveggja herbergja íbúð á jarðhæð í einbýlishúsi. Fyrir neðan húsið er útivistarsvæði og umhverfið kyrrlátt. Gólfefni eru flísar og parket, eldhús opið við stofu sem er með gólfsíðum gluggavegg. Ísskápur, þvottavél, þurrkari og gardínur fylgja. Leitað er eingöngu að reglusömum einstaklingi eða pari í fastri atvinnu með góð meðmæli. Húsið er reyklaust.
Leiguverð er 170.000
Húsgjöld eru innifalinn í leigu
Gæludýr eru ekki leyfð
Tveggja mánuða trygging. Fyrirfram skal greiddur einn mánuður
Hiti er innifalinn, ekki rafmagn
Íbúðin er laus 1.nóvember
Áhugasamir sendið inn upplýsingar um nafn, aldur, starf, fjölskylduhagi og símanúmer
↧
Fífuhjalli 1, Kópavogur, 55 fm: 170.000 kr.
↧