Quantcast
Channel: Íbúðahúsnæði til leigu
Viewing all articles
Browse latest Browse all 10725

Hávallagata 7, Miðbær/Vesturbær, 60 fm: 195.000 kr.

$
0
0

*** Skemmtileg 2ja herbergja kjallaraíbúð í miðbæ Reykjavíkur***

Auglýst er til leigu falleg kjallaraíbúð í þríbýlishúsi við Hávallagötu í miðbæ Reykjavíkur. Íbúðin telur 60 fermetra að stærð og er með eitt svefnherbergi.

Gengið er inn austanmegin hússins og komið inn í forstofu. Inn af forstofunni er að finna fyrst baðherbergi með sturtu og síðan eldhús með upprunalegri innréttingu. Sé gengið beint inn úr forstofu er komið inn í rúmgóða stofu með bogadregnum gluggum sem vísa út í garð til suðurs. Inn af stofu er rúmgott svefnherbergi með veggháum skápum sem fylgja með og gluggum í suðvestur. Í stofu er parket á gólfi, en korkflísar á öðrum flötum. Íbúðin er með sérgeymslu sem er innangengt í úr íbúðinn, auk þess sem þvottarými er í sameign með íbúð á miðhæð.

Íbúðin er tilvalin fyrir einstæðinga, pör eða fjölskyldu með eitt barn. Íbúðin er mjög miðsvæðis og einungis er nokkurra mínútna gangur niður í miðbæ Reykjavíkur, auk þess sem Háskóli Íslands er í göngufæri.

Íbúðin er laus strax og leigist á kr. 195.000,- á mánuði. Gerð er krafa um 3ja mánaða bankaábyrgð og meðmæli. Einungis reglusamir og skilvísir leigjendur koma til greina.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 10725


<script src="https://jsc.adskeeper.com/r/s/rssing.com.1596347.js" async> </script>