
Nýleg og glæsileg þriggja herbergja íbúð á fyrstu hæð í fimm hæða fjölbýlishúsi með lyftu við Friggjarbrunn 55 í Úlfarsárdal.
Gengið er inn í flísalagða forstofu með fataskáp. Stórt opið rými skiptist í eldhús og stofu. þrjú rúmgóð svefnherbergi með fataskápum. Parket á gólfum. Stórt flísalagt baðherbergi með sturtu og tengi fyrir þvottavél.
Hiti er innifalinn í leiguverði en hússjóður kr. 14.000.- (rekstrarkostnaður sameignar) og rafmagn greiðist af leigutaka. Stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni.
Leigusali fer fram á tveggja mánaða tryggingu, framvísun sakavottorðs, meðmæli frá fyrri leigusala og staðfestingu á reglulegum tekjum. Gæludýr og reykingar eru ekki leyfð inni í íbúðinni.
_______________________________
Almenna leigufélagið býður langtímaleigu íbúðarhúsnæðis, hátt þjónustustig, öryggi og sveigjanleika. Félagið annast útleigu um 1250 íbúða sem staðsettar eru vítt og breitt um höfuðborgarsvæðið og víðar um landið.
Kynnið ykkur úrval lausra íbúða á heimasíðu félagsins: www.al.is