
EIGNIN ER LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING.
Um er að ræða stórglæsilegt og vandað parhús á tveim hæðum á skemmtilegum útsýnisstað í Úlfarsárdalnum innst í götu.
Eignin er 205 fm og skiptist í 176.9 fm íbúðarrými og 28.1 fm innbyggðan bílskúr, rúmgóðar suður-svalir og verönd úr harðvið, hleðslugrjót í kringum og meðfram húsi.
Vandaður frágangur á allri lóðinni með skemmtilegri útilýsingu hefur verið sett í pallinn og meðfram húsinu.
Stutt er í leikskóla, skóla, íþróttar og útivistarsvæði.
MÖGULEGT AÐ YFIRTAKA CA KR. 52.000.000 LÁN Á EIGNINNI.
Upplýsingar um eign og bókun á skoðunartíma:
Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900.820 eða sveinn@landmark.is
Eignin skiptist í:
Forstofu, gesta-baðherbergi, stofu, borðstofu, eldhús, þrjú góð svefnherbergi og er fataherbergi innaf hjónaherbergi, aðal-baðherbergi, alrými/sjónvarpsrými, þvottaherbergi/geymsla, innbyggður bílskúr með geymslulofti. Mjög rúmgóðar suður og austur-svalir út frá stofurými, frágengin pallur út af neðri hæð, lóð fullfrágengin á snyrtilegan hátt.
Nánari lýsing á eign:
Inngangur er á aðalhæð en þar er forstofa með góðum fataskáp. Gestabaðherbergi sem er flísalagt á veggjum, vegghengt klósett.
Gangur þar sem komið er í stofu, borðstofu og eldhús, gólfsíðir gluggar á tvo vegu í stofu, aukin lofthæð og er útgengt á rúmgóðar suð-austur svalir úr stofu sem eru með steyptu þakskyggni, innfelld lýsing á svölum.
Fallegt ýtsýni yfir höfuðborgarsvæðið af svölum.
Eldhús er verulega vandað og er opið inn í stofu, vönduð sérsmíðuð HTH-eldhúsinnrétting með efri og neðri skápum, dökkur Granít-steinn er í borðplötum í eldhúsi og á eldhúseyju sem er með góðu skápaplássi í miðju rými, vönduð SUB-ZERO WOLF eldhústæki í eldhúsi (Span helluborð, ekstra breiður og stór ofn með hitaskúffu undir ofni), gler er á vegg milli efri og neðri skápa í eldhúsi. Skemmtileg lýsing undir efri skápum.
Kæli/frystiskápur og vínskápur (fyrir ca. 50 flöskur) í eldhúsi er mögulegt að fá keypt aukalega með eign.
Inngengt úr forstofuí rúmgóðan bílskúr með geymslulofti, EPOXY á gólfum í bílskúr, rafdrifin bílskúrshurð.
Steyptur stigi er milli hæða og er hert glerhandrið niður með tröppum, vönduð næturlýsing í stigaþrepum.
Á neðri hæð er komið á gang, alrými/sjónvarpsrými sem er framan við svefnherbergi.
Þrjú góð svefnherbergi eru á hæðinni og er rúmgott fataherbergi með sérsmíðaðri innréttingu innaf hjónaherbergi, hin tvö herbergin eru skápalaus.
Aðalbaðherbergi er rúmgott með flísum á gólfi, WALK-IN sturta með lituðu gleri í veggjum sturtu, innrétting í kringum vask, vegghengt klósett, ath. að mögulegt er að setja upp baðkar.
Rúmgott þvottaherbergi með góðri lofthæð, innrétting er undir þvottavél og þurrkara og eins er rúmgóður innbyggður skápur í þvottaherbergi.
Gólfefni: Flísar og eikarparket á aðalgólfum eignar. EPOXY á gólfi bílskúrs.
Innfelld lýsing í loftum og vandaðir slökkvarar, 3ja fasa rafmagn í eldhúsi.
Glæsileg lóð er fullfrágengin með hleðslugrjóti og er steyptur stoðveggur niður með húsi og er hann að hluta klæddur með harðvið að hluta og eins er harðviður í verönd.
Hert gler er á svölum meðfram húsi. Vönduð útilýsing á verönd og meðfram öllu húsi. Hiti er í bílaplani sem getur tekið 3 bíla.
EIGN SEM VERT ER AÐ SKOÐA, VANDAÐUR FRÁGANGUR Á ÖLLU OG TÆKJA OG EFNISVAL ER FYRSTA FLOKKS.
-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali gsm: 6900.820 eða sveinn@landmark.is
Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar.
Fáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
- Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila, 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða.
- Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.000 af hverju skjali.
- Umsýslugjald fasteignasölu kr. 69.900.- með vsk.
- Annar kostnaður t.d. skilyrt veðleyfi / skjalagerð kr: 15.000.- auk vsk.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill LANDMARK fasteignamiðlun því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og eftir atvikum leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.