
Um er að ræða nýlegt og vel skipulagt 4ra herbergja 126.5 fm raðhús á einni hæð, þar af er 21.4 fm innbyggður bílskúr, í Tunguhverfinu í Mosfellsbæ.
Aukin lofthæð er í öllu húsinu.
Búið að setja upp afgirtar verandir framan og aftan við hús ca. 50 & 80 fm, frágangur á bílaplani er eftir.
EIGN GÆTI FENGIST AFHENT UM MIÐJAN JANÚAR 2019.
Upplýsingar um eign og bókun á skoðunartíma:
Sveinn Eyland lögg.fasteignasali gsm: 6900.820 eða sveinn@landmark.is
Eignin skiptist í:
Forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, hol/gang, baðherbergi, bílskúr með millilofti og tvær stórar verandir.
Nánari lýsing á eign:
Komið er inn í rúmgóða forstofu með fataskápum. Úr forstofu inngengt í bilskúr.
Opin og björt stofa/borðstofa með aukinni lofthæð, útgengi út á afgirta vestur-veröndúr stofu sem er ca. 50 fm.
Eldhús er opið inn í stofu/borðstofu, snyrtileg innrétting með efri og neðri skápum og eru flísar á vegg milli skápa, innbyggð uppþvottavél og ísskápur í innréttingu sem að fylgir með í kaupum.
Úr eldhúsi er útgengt á skjólgóða afgirta suð-austur verönd sem er ca. 80 fm.
Hol/herbergjagangur og inn af honum eru þrjú rúmgóð svefnherbergi sem eru öll með fataskápum.
Baðherbergi er snyrtilegt með flísum á gólfi og veggjum, inngengur sturtuklefi með glerskilrúmi, snyrtileg innrétting með skápum í kringum vask, veggjengt klósett, handklæðaofn, á baðherbergi er ráð fyrir þvottavél og þurrkara.
Þvottavél er staðsett í bílskúr sem er rúmgóður með innréttingu og er vaskur í innréttingu epoxy á gólfum, gott geymsluloft er í bílskúr.
Gólfhiti er í öllu húsi. Gólfefni: Vinylparket og flísar á gólfum eignar.
Bílaplan framan við húseign er ófrágengið.
-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali gsm: 6900.820 eða sveinn@landmark.is
Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar.
Fáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
- Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila, 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða.
- Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.000 af hverju skjali.
- Umsýslugjald fasteignasölu kr. 69.900.- með vsk.
- Annar kostnaður t.d. skilyrt veðleyfi / skjalagerð kr: 15.000.- auk vsk.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill LANDMARK fasteignamiðlun því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og eftir atvikum leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.