
LEIGUVERÐ er 215.000 á mánuði en þá er hússjóður og hiti innifalinn, greitt aukalega fyrir rafmagn.
LANDMARK fasteignasala og Þórey Ólafsdóttir löggiltur fasteignasali, félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna TIL LEIGU rúmgóða 2ja herbergja með fallegu útsýni í Ljósuvík 30 í Grafarvogi. Sérinngangur og afnotaréttur. Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla sem og golfvöllinn og falleg útivistarsvæði.
Nánari lýsing
Forstofa með fataskáp, flísar á gólfi.
Stofa, björt og rúmgóð með fallegu útsýni.
Eldhús með hvítri innréttingu og góðum borðkrók. Fallegt útsýni og útgengt á sér afnotarétt íbúðar.
Hjónaherbergi með stórum fataskáp.
Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, með hvítri innréttingu, salerni og baðkari með sturtustöng
Þvottahús með hillum og skolvask, flísar á gólfi.
Geymsla innaf þvottahúsi sem nýta má sem skrifstofu eða vinnuherbergi.
Eigninni fylgir hlutdeild í sameign, sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Óskað er eftir tryggingu í formi bankaábyrgðar, lánshæfismati frá Creditinfo og/eða meðmælum.
Frekari upplýsingar veitir Arnór Smári eigandi, arnor-smari@hotmail.com en þá koma eingöngu reyklausir og reglusamir leigutakar til greina.
Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar.
Fáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
- Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila, 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða.
- Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.000 af hverju skjali.
- Umsýslugjald fasteignasölu kr. 69.900.- með vsk.
- Annar kostnaður t.d. skilyrt veðleyfi / skjalagerð kr: 15.000.- auk vsk.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill LANDMARK fasteignamiðlun því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og eftir atvikum leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.