Quantcast
Channel: Íbúðahúsnæði til leigu
Viewing all articles
Browse latest Browse all 10725

Barónsstígur, Miðbær/Vesturbær, 72 fm: 230.000 kr.

$
0
0

Íbúð í 101, á horni Barónsstígs og Bergþórugötu, til langtímaleigu.
Íbúðin er laus frá 1.febrúar.
Íbúðin er á fyrstu hæð (ekki á jarðhæð) í fjölbýlishúsi. Íbúðin er skráð 72fm, en auk þess er sér-geymsla og sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi í kjallara. Íbúðin er 3ja herbergja: 1 svefnherbergi og 2 stofur.
Nánari lýsing á íbúð: Gengið er inn í forstofu / gang með innbyggðum fataskáp. Inn af ganginum er lítið baðherbergi með sturtu. Þegar gengið er framhjá baðherbergi er rúmgott eldhús. Innst af ganginum er rúmgott svefnherbergi með innbyggðum skápum með miklu skápaplássi. Við hliðina á svefnherberginu eru samliggjandi stofa og borðstofa.
Leiguverð er 230.000 á mánuði (og er hiti og hússjóður innifalinn). Íbúðin leigist ÁN húsgagna. Einungis reglusamir og reyklausir einstaklingar koma til greina. Þá er farið fram á 3 mánuði í tryggingu, form tryggingar er samkomulagsatriði.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 10725