Til leigu 2 herbergja falleg og björt íbúð að Helluvaði í Norðlingaholti. Íbúðin er til leigu frá 1. febrúar 2019 (eða 1. mars) og til 1. september með möguleika á framlengingu. Íbúðin er um 65 fm með rúmgóðu baðherbergi, baðkar, sturta og tengi fyrir þvottavél. Einnig hægt að hafa þvottavél í kjallara. Rúmgott svefnherbergi með mjög góðu skápaplássi. Vandað eldhús og eldhústæki. Borðstofa, eldhús og stofa rennan saman. Plássið nýtist því vel. Útsýnið er yfir í Heiðmörk, suðursvalir. Niðri er bílastæði innanhúss og mjög rúmgóð geymsla með hillum. Öll umgengni í sameign er til fyrirmyndar. Reykingar og dýrahald er ekki leyfilegt.
Ef þú/þið hafið áhuga sendið mér skilaboð með upplýsingum um ykkur (aldur, vinnustað/nám og fjölskylduaðstæður). Meðmæli óskast ef það er mögulegt og/eða yfirliti frá Creditinfo. Ég hef haft góða leigjendur fram að þessu og stefni að því áfram. Óskað er eftir 3 mánaða bankatryggingu. Leigan er kr. 212.000 á mánuði og innifalinn er hússjóður.