fasteign.is kynnir:
TIL LEIGU FALLEG ÚTSÝNISÍBÚÐ Á BESTA STAÐ Í SELÁSNUM

ÚTSÝNISÍBÚÐ- SKÓGARÁS 6 - EFRI HÆÐ OG RIS

Um er að ræða endaíbúð 96,4 fm. efri hæð og ris í litlu fjölbýli á frábærum stað með frábæru útsýni til suðurs og vesturs til fjalla og yfir Elliðaárdalinn.

Húsið er í góðu standi, klætt að utan og er þakjárn nýlegt.

Nánari lýsing íbúðar:

Aðal hæð:

Komið er inn í hol með fataskápum og flísum á gólfi.

Eldhús og borðstofa í einu opnu rými. Falleg ljós viðarinnrétting, flísar á gólfi og frábært útsýni yfir Elliðárdalinn.

Stofan er rúmgóð og björt með fallegu viðarparketi, gluggar á tvo vegu, til suðurs og vesturs. Útgengt á suðursvalir með miklu útsýni.

Baðherbergið er rúmgott, flísalagt í hólf og gólf. Efri skápar og sturtuklefi. Plássgóð þvottaaðstaða.

Eitt rúmgott svefnherbergi er á neðri hæð með parketi og plássgóðum háglans hvítlökkuðum fataskápum.

Risið:

Stigi upp í risið frá holinu.

Plássgóður stigapallur þar sem auðvelt er að hafa gott svefnrými. Velux veltigluggi og súðargeymslur.

Eitt mjög stórt herbergi með skápum, suðurglugga í enda og einnig Velux veltiglugga. Góðar súðargeymslur.

Allar nánari upplýsingar:

Ólafur B Blöndal hjá fasteign.is olafur@fasteign.is s. 6-900-811

Skógarás 6, Árbær/Selás, 96 fm: 275.000 kr.