Til leigu, glæsileg 120 m2 útsýnisíbúð í Grafarholti, sem er laus til leigu strax. Í íbúðinni eru þrjú rúmgóð svefnherbergi, eitt baðherbergi flísalagt í hólf og gólf með sturtubaðkari og viðarinnréttingu, eldhús með flísum á gólfi og góðri viðarinnréttingu. Stofa og borðstofa liggja saman og eru með parketi. Þvottahús er innan íbúðar og með flísum á gólfi og góðri innréttingu. Útgengi er út á flísalagðar suðvestursvalir. Tæplega 8 m2 geymsla er í kjallara sameignar. Helst er leitað að langtímaleigu, og er leigufjárhæð kr. 270.000 + 22.000 í hússjóð pr. mán. Trygging 300.000 kr. Eingöngu reyklausir, reglusemir og skilvísir koma til greina, dýrahald er ekki leyft (húsfélagsreglur) og ekki verður leigt til samleigu (flatshare). Meðmæli frá fyrrum leigusala/leigusölum er kostur. Áhugasamir hafið samband í síma 695-3999 (Birkir)
↧