
Allar nánari upplýsingar veita:
Ólafur H. Guðgeirsson, MBA rekstrarhagfræðingur, lgfs. í síma 663-2508 eða olafur@stakfell.is.
Erla Dröfn Magnúsdóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali. S. 6920149 eða erla@stakfell.is
Eignin er fjögurra herbergja íbúð á þriðju hæð í suðurenda hússins, merkt 02-0302, birt stærð íbúðar 120,8 m2. Eigninni tilheyrir geymsla (0051) birt stærð 6,8 m2 og svalir (0306) stærð 21,1 m2. Einnig fylgir bílastæði merkt B06 í bílageymslu. Tengi fyrir þvottavél í íbúð. Samtals birt stærð séreignar er 127,6 fermetrar.
Íbúðin skiptist í stóra forstofu með fataskáp, hjónaherbergi með fataherbergi innaf, tvö barnaherbergi með fataskápum, flísalagt baðherbergi með sturtu, innréttingu, vegghengdu salerni og tengi fyrir þvottavél, og stofu og eldhús í rúmgóðu alrými. Stórir og bjartir gluggar til suðurs og austurs einkenna alrýmið. Svaladyr eru bæði í stofu og svefnherbergi. Íbúðin afhendist fullbúin og með öllum gólfefnum, flísum á votrýmum og 8mm harðparketi með eikaráferð á stofu og herbergjum, vönduðum innréttingum og tækjum, þar á meðal ísskáp og uppþvottavél samkvæmt skilalýsingu sem kaupandi hefur kynnt sér og telst hluti af söluyfirliti þessu.
Íbúðirnar eru rúmgóðar og vel skipulagðar. Húsið skiptist í tvær byggingar, Vallakór 6a og 6b með tveimur lyftuhúsum, tvær lyftur í öðru húsinu en ein í hinu. Stigar eru í báðum lyftuhúsum og er aðgengi þess vegna gott. Með öllum íbúðunum fylgir sér bílastæði í lokaðri bílgeymslu. Allar íbúðirnar eru með rúmgóðum svölum, en gott rými er á svölunum fyrir grill og garðhúsgögn. Íbúðir á jarðhæð eru með sérafnotarétt á lóð. Mikið útsýni er einkennandi fyrir allt húsið.
Eignin er staðsett á vinsælum stað í Kópavogi þar sem stutt er í alla þjónustu. Má þar nefna grunnskóla, leikskóla, íþróttaakademíuna og góða knattspyrnuvelli, sundlaug en Salalaug er í göngufæri svo fátt eitt sé nefnt. Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar.
Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 2.000 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
6. Skipulagsgjald af endanlegu brunabótamati íbúðarinnar, 0,3%.
Stakfell fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús.
Fasteignasalan Stakfell | Borgartún 30 | 105 Reykjavík | Sími 535 1000 | www.stakfell.is