Quantcast
Channel: Íbúðahúsnæði til leigu
Viewing all articles
Browse latest Browse all 10725

Dalsel 38, Bakkar/Seljahverfi, 125 fm: 0 kr.

$
0
0

Borg fasteignasala kynnir til sölu: Stór fimm herbergja 125m2 íbúð á fyrstu hæð i góðu fjögurra hæða fjölbýlishúsi í Dalseli 38, 109 Reykjavík. Íbúðinni fylgir sér stæði í bílastæðahúsi.

Skipulag: forstofa/hol, gangur, stofa og borðstofa, fjögur svefnherbergi, eldhús, baðherbergi, yfirbyggðarsvalir með svalalokun.

Nánari lýsing: Komið er inn í forstofu/hol með flísum á gólfi, þaru er góðir skápar fyrir yfirhafnir. Eldhúsið er flísalagt með hvítri háglans innréttingu, flísar á vegg milli efri og neðri hluta innréttingar, gott borðpláss og og eldhúskrókur. Stofa og borðstofa eru með parket á gólfi, frá stofu er gengið út á svalir íbúðarinnar sem eru með flísum á gólfi og svalalokun. Baðherbergið er með gráar flísar á gólfi, hvítar á veggjum að hluta, hvít innrétting undir vaski, baðker, handklæðaofn, speglaskápur og spegill fyrir ofan vask.  Skápur fyrir þvottavél og þurrkara er inn á baðherbeginu. 

Fjögur svefnherbergi eru í íbúðinni:
Herbergi 1: Stærsta svefnherbergi íbúðarinnar er með parket á gólfi, stórir skápar með speglahurðum.
Herbergi 2: Parket á gólfi, skápur.
Herbergi 3: Parket á gólfi, skápur.
Herbergi 4: parket á gólfi.

Annað: Eignin er í góðu fjölbýlishúsi sem hefur fengið gott viðhald, m.a. hefur húsið verið klætt með álklæðningu, þak málað og skipt um flesta glugga. íbúðinni fylgir stæði í bílastæðahúsi, sér geymsla og aðgangur að sameiginlegur þvottahúsi, hjóla-og vagnageymslu. Íbúðin getur verið laus fljótlega eða samkvæmt samkomulag.

Nánari upplýsingar veitir: Böðvar Sigurbjörnsson löggiltur fasteignasali / lögfræðingur M.L. í síma 660-4777 eða bodvar@fastborg.is


Viewing all articles
Browse latest Browse all 10725


<script src="https://jsc.adskeeper.com/r/s/rssing.com.1596347.js" async> </script>