Falleg tveggja herbergja íbúð við Skyggnisbraut 20 við Úlfarsfell er laus til langtímaleigu.
Íbúðin skiptist í svefnherbergi með fataskáp, rúmgóða og bjarta stofu með samliggjandi eldhúsi og baðherbergi með sturtu og tengi fyrir þvottvél. Góð geymsla í kjallara fylgir íbúðinni. Hjólageymsla í sameign. Hiti er innifalinn í leiguverði en hússjóður (rekstrarkostnaður sameignar) og rafmagn greiðist af leigutaka. Leigusali fer fram á tveggja mánaða tryggingu, framvísun sakavottorðs, meðmæli frá fyrri leigusala og staðfestingu á reglulegum tekjum. Gæludýr og reykingar eru ekki leyfð inni í íbúðinni.
------------------------------------------------------------------
Almenna leigufélagið býður langtímaleigu íbúðarhúsnæðis, hátt þjónustustig, öryggi og sveigjanleika. Félagið annast útleigu um 1250 íbúða sem staðsettar eru vítt og breitt um höfuðborgarsvæðið og víðar um landið.
Kynnið ykkur úrval lausra íbúða á heimasíðu félagsins: www.al.is