Falleg 2-3ja herbergja íbúð í parhúsi við Borgarbraut 7 í Búðardal er laus til langtímaleigu.
Íbúðin skiptist í forstofu með góðum fataskápum, eldhús með snyrtilegri innréttingu og stofu í sama rými. Eitt svefnherbergi og baðherbergi með baðkari. Eins og sjá má á teikningunum þá er 6fm geymsla í íbúðinni með glugga í fullri stærð og því hægt að nota hana sem svefnherbergi. Flísar eru á gólfum.
Leigusali fer fram á tveggja mánaða tryggingu, meðmæli frá fyrri leigusala, lánshæfismati frá Credit Info og staðfestingu á reglulegum tekjum.
Rafmagn og hiti greiðist af leigutaka. Gæludýr og reykingar eru ekki leyfð inni í íbúðinni.
------------------------------------------------------------------
Almenna leigufélagið býður langtímaleigu íbúðarhúsnæðis, hátt þjónustustig, öryggi og sveigjanleika. Félagið annast útleigu um 1250 íbúða sem staðsettar eru vítt og breitt um höfuðborgarsvæðið og víðar um landið.
Kynnið ykkur úrval lausra íbúða á heimasíðu félagsins: www.al.is