
LANDMARK fasteignamiðlun ehf. og Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu: Mjög falleg og vel skipulögð 3ja herbergja endaíbúð með sameiginlegum inngangi á 3. hæð í 4ra hæða uppgerðu fjölbýlishúsi við Kópavogsbraut í Kópavoginum. Kópavogsbraut 3 er staðsteypt og einangrað að innan, klætt að utan með hvítri álklæðningu og bandsagaðri viðarklæðningu á þakhæð. Húsið var upphaflega byggt árið 1960 en árið 1993 var húsið klætt að utan og skipt var um alla glugga. Í lok árs 2011 var ráðist í gagngerar endurbætur á húsinu að innan sem utan og útbúnar 23 íbúðir. Öll lagnakerfi hafa verið endurnýjuð þ.m.t ofnalagnir, fráveitulagnir og vatnslagnir. Einnig hefur loftræsikerfi verið endurnýjað ásamt raflögnum og fjarskiptalögnum þ.m.t ljósleiðari. Sér rafmagnstafla fyrir hvorn stigagang. Lóðin hefur verið endurnýjuð með malbikuðum bílastæðum og hellulögðum göngustígum með snjóbræðslu. Sorp- og hjólageymsla í sérstakri byggingu á lóðinni ásamt afmörkuðu leiksvæði. Fráveitulagnir hafa verið endurnýjaðar ásamt drenlögum meðfram húsinu. Góð aðkoma, næg bílastæði. Hvítlakkaðar innréttingar ásamt hvítum yfirfelldum innihurðum - innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja með í kaupunum. Fataskápar og fataskápur í anddyri eru frá AXIS. Snyrtileg sameign með teppalögðum stigum og gólfum.
Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða andri@landmark.is
Nánari lýsing eignar: Komið er inn í anddyri, fataskápur. Innaf anddyrinu baðherbergi sem er flísalagt í hólf og gólf, falleg hvítlökkuð innrétting, flísalögð sturta með glerskilrúmi og vönduðum tækjum, upphengt salerni og handklæðaofn. Halógen lýsing í lofti á baði. Tengi fyrir þvottavél á baðherbergi og búið að stúka af með skáp. Frá anddyri tekur við sjónvarpshol / stofa. Eldhús opið inn í stofu / borðstofu. Falleg hvítlökkuð innrétting í eldhúsi. Frá stofu / borðstofu er unnt að ganga út á suðursvalir. Tvö svefnherbergi, fataskápur í öðru herberginu. Á 1 hæðinni fylgir íbúðinni sérgeymsla. Gólfefni: parket og flísar á gólfum.
Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða andri@landmark.is
ERTU Í FASTEIGNAHUGLEIÐINGUM? ÞARFTU AÐ SELJA?
Ég hef starfað við sölu fasteigna samfleytt frá árinu 1997 og ég er félagsmaður í Félagi fasteignasala. Ég legg áherslu á vandvirkni, heiðarleika og ábyrgð í fasteignasölu. Sanngjörn söluþóknun, ekki hika við að samband við mig í síma 690 3111 eða andri@landmark.is
Hérna finnurðu mig á Facebook
Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar.
Fáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
- Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila, 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða.
- Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
- Umsýslugjald fasteignasölu kr. 69.900.- með vsk.
- Annar kostnaður t.d. skilyrt veðleyfi / skjalagerð kr: 15.000.- auk vsk.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill LANDMARK fasteignamiðlun því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og eftir atvikum leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.