Quantcast
Channel: Íbúðahúsnæði til leigu
Viewing all articles
Browse latest Browse all 10725

Mánatún 1, Austurbær, 105 fm: 0 kr.

$
0
0

***DOMUSNOVA KYNNIR * GLÆSILEG 105,9FM. ÍBÚÐ Á 2. HÆÐ***
***Afhending við kaupsamning***

Falleg tveggja herbergja íbúð á 2 hæð, í nýbyggingu við Mánatún 1, íbúð 205. íbúðin er 105,9 fm, þar af 6,4fm geymsla. Sérsmíðaðar innréttingar, aukin lofthæð, íbúðinni fyrlgir stæði í bílakjallara. Íbúðin afhendist fullbúin án gólfefna en flísar eru á votrýmum. 
Nánari lýsing:
Forstofa: Rúmgóð forstofa með skápum.
Svefnherbergi: Rúmgott svefnherbergi með góðu skápaplássi.
Eldhús: Sérsmíðuð innrétting frá Brúnás, heimilistæki frá AEG. Hæglokandi skúffu og skápaeiningar. Rými og tengi fyrir uppþvottavél og ísskáp. Með aðgengi út á svalir frá eldhúsi.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og flísar á veggjum að hluta. Vaskinnrétting með handlaug, upphengt salerni. glerskilrúm við sturtu. Á baðherbergi er gólfhiti ásamt handklæðaofni. Inni á baðherbergi er þvottaaðstaða með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Stofa: Björt og rúmgóð stofa, opin frá eldhúsi, með aðgengi út á svalir frá stofu.

Byggingin mun innihalda 34 vandaðar íbúðir á átta hæðum. Verkefnið er fjórði og síðasti áfanginn á lóðinni. Stutt er í alla þjónustu, afþreyingu, iðandi atvinnulíf og hindrunarlausar gönguleiðir eru í útivistina í Laugardalnum. Aðkoman að húsinu er þæginleg og aðlagandi, gangstétt er frá rúmgóðu bílastæði við torg í skjóli húsanna að andyri hússins. Einnig fylgir bílastæði í bílageymslu öllum íbúðum.
 Arkitektar hússins eru KANON arkitektar ehf. Lýsing er hönnuð af Raflausnum. Verkfræðistofan VSB sér um verkfræðihönnun og tengda ráðgjöf. Lagður er metnaður í faglegan frágang.
Sjá nánar teikningar og skilalýsingu: http://vefir.onno.is/dverghamrar/manatun-1/

Nánari upplýsingar veita:
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is
Gunnar Vilhelmsson aðstoðamaður fasteignasala / s:7763848 / gunnar@domusnova.is
Agnar Agnarsson löggiltur fasteignasali / s.8201002 / agnar@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.



 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 10725


<script src="https://jsc.adskeeper.com/r/s/rssing.com.1596347.js" async> </script>