Quantcast
Channel: Íbúðahúsnæði til leigu
Viewing all articles
Browse latest Browse all 10725

Friggjarbrunnur 57, Grafarholt, 4 fm: 250.000 kr.

$
0
0

Nýleg og glæsileg fjögurra herbergja íbúð á fyrstu hæð í fimm hæða fjölbýlishúsi með lyftu við Friggjarbrunn 57 í Úlfarsárdal laus til langtímaleigu.
Gengið er inn í flísalagða forstofu með fataskáp. Stórt opið rými skiptist í eldhús og stofu. þrjú rúmgóð svefnherbergi með fataskápum. Parket á gólfum. Stórt flísalagt baðherbergi með sturtu og tengi fyrir þvottavél.
Hiti er innifalinn í leiguverði en hússjóður kr. 14.000.- (rekstrarkostnaður sameignar) og rafmagn greiðist af leigutaka.
Stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni. Athugið að meðfylgjandi myndir eru ekki af umræddri íbúð, innréttingar og gólfefni eru sambærileg.

Leigusali fer fram á tveggja mánaða tryggingu, framvísun sakavottorðs, meðmæli frá fyrri leigusala og staðfestingu á reglulegum tekjum.
Gæludýr og reykingar eru ekki leyfð inni í íbúðinni.

----------------------------------------------------------------
Almenna leigufélagið býður langtímaleigu íbúðarhúsnæðis, hátt þjónustustig, öryggi og sveigjanleika. Félagið annast útleigu um 1250 íbúða sem staðsettar eru vítt og breitt um höfuðborgarsvæðið og víðar um landið.
Kynnið ykkur úrval lausra íbúða á heimasíðu félagsins: www.al.is


Viewing all articles
Browse latest Browse all 10725


<script src="https://jsc.adskeeper.com/r/s/rssing.com.1596347.js" async> </script>