Jason Ólafsson, netfang: jko@miklaborg.is kynnir eftirfarandi eign til leigu: Rúmgóð og vel skipulögð þriggja herbergja íbúð á 3. hæð ásamt stæði í bílageymslu í góðu fjölbýlishúsi við Tröllakór. Eignin telur góða stofu með stórum svölum, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og forstofu.
Nánari lýsing : Komið er inn í flísalagða forstofu með góðum fataskáp. Stofan er rúmgóð og parketlögð með útgengi út á stórar svalir. Eldhúsið sem er hálf opið inn í stofurýmið er með góðri innréttingu. Svefnherbergin tvö eru rúmgóð með parketi á gólfi og fataskápum. Baðherbergið er flísalagt þar er góð innrétting og baðkar með sturtuaðstöðu. Þvottahús er flísalagt innan íbúðar. Í sameign fylgir eigninni geymsla og sameiginleg hjóla og vagnageymsla ásamt stæði í bílageymslu. Að utan er húsið klætt og viðhaldslétt.
Þetta er vel skipulögð eign í góðu viðhaldsléttu fjölbýli.