
Til leigu falleg 4 herbergja 149,1m² íbúð í Brákarbraut 4, 202 í Borgarnesi. Neðri hæð: Forstofa flísalögð. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf,baðkar, hvít innrétting, upphengt klósett. Eldhús er opið við stofu, falleg innrétting, parket, útgengi úr eldhúsi á svalir.Stofa er með parketi (hlynur). Svefnherbergi með fataskáp, parket. Efri hæð: Góður stigi á efri hæð, 2 svefnherbergi með skápum, parket á gólfi, velux þakgluggar. Lítil stofa, útgengt á svalir. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf,baðkar, upphengt klósett, tengi fyrir þvottavél. Geymsla á 1. hæð. Gólfhiti er á neðri hæð og ofnar á efri hæð. Eignin skiptist í 141,8m² og 7,3m² geymslu. Leigist án húsgagna. Eignin er laus. Aðeins mjög reglusamir og traustir leigjendur koma til greina. Leiguverð er án hita og rafmagns og er leigan tengd neysluvísitölu sem endurskoðast á 3 mánaða fresti. Ekki er leyfilegt að hafa gæludýr. Trygging: Bankaábyrgð sem nemur 2 mánaða leigu eða greiðsla inn á reikning hjá Íbúðalánasjóði.
Umsóknarfrestur er til og með 15. ágúst n.k.
Eignin er laus og leigist frá 1. september n.k. eða fyrr eftir samkomulagi. Gæludýr eru ekki leyfð i eigninni. Sjá úthlutunareglur Íbúðalánasjóðs http://www.ils.is/einstaklingar/ibudir-til-leigu/uthlutunarreglur-leiguibuda/.
Sækja verður um hverja eign fyrir sig með því að senda: Heiti eignar, nafn, kennitölu og símanúmerá netfangið leiga@ils.is
Ath. umsókn er ekki tekin gild nema að þessar upplýsingar komi fram í umsókn.
Ekki er hægt að skoða eign nema af myndum á netinu, nema fyrir þann aðila sem fær íbúðina, hann getur þó neitað henni eftir skoðun, hver íbúð er auglýst í 7 daga og eftir það er unnið úr umsóknum. Öllum umsóknum er svarað eftir úrvinnslu.