
TIL LEIGU Glæsilegt 301 fm einbýlishús á einni hæð í Garðinum með innbyggðum bílskúr. Einstaklega björt og stór alrými með mikilli lofthæð. Lokað garðrými er í miðju hússins undir berum himni. Svefnherbergin eru 6-7 talsins. Húsið er staðsett innst í botnlanga.
Nánari lýsing:
Forstofa: Flísalögð og opin við hol sem er með góðum fataskápum.
Stofa borðstofa: Stór og sérstaklega björt rými með mikilli lofthæð, innfelldri lýsingu og útgengi á lóð. Flísar eru á gólfi.
Eldhús: Opið við stofurýmið, þar er fín eldhúsinnrétting með eldunareyju, borðkrókur, flísar á gólfi.
Svefnherbergi: Í húsinu er allt að sjö svefnherbergi með parketi á gólfi, eitt þessara herbergja er hugsað sem fataherbergi innaf hjónaherberginu. Fataskápur er í hluta herbergja.
Hol: Parketlagt framan við herbergjagang.
Baðherbergin: Eru tvö, bæði flísalögð með glugga og vegghengdu salerni. Annað baðherbergið með sturtu og hitt með baðkari.
Þvottahús: Er flísalagt og flísalagt með glugga.
Bílskúrinn: Flísalagður, innangengt í forstofu.
Laust strax.
SKILYRÐI ; Fyrsti mánuður fyrirfram og Leigutaki skal leggja fram þriggja mánaða bankatryggingu.
Allar upplýsingar eingöngu á e-maili ks@midbaer.is
Kristbjörn Sigurðsson löggiltur leigumiðlari s. 692-3000