Quantcast
Channel: Íbúðahúsnæði til leigu
Viewing all articles
Browse latest Browse all 10725

Frostafold 123, Grafarvogur, 82 fm: 180.000 kr.

$
0
0

Valfell fasteignamiðlun og ráðgjöf sími 5704824. Til leigu, tímabundið  í a.m.k. 2 ár  frá 1. mars 2019. Rúmgóð og björt 81,8 fm 2ja herbergja íbúð á 2. hæð með sérinnngangi. Íbúðinni fylgir sameiginleg vagna og hjólageymsla.  Íbúðinni fylgir ekki geymsla.  
Svefnherbergi með góðu skápaplássi. Baðherbergi með baðkari og tengi fyrir þvottavél. Eldhús með borðkrók og rúmgóð stofa, úr stofu er gengið út á vestursvalir með fallegu útsýni.  Leigjandi þarf að sjá um skiptingu á sorptunnum á fjögurra mánaða fresti í 2 vikur og sópa úti stigagang öðru hverju. Íbúðinni getur fylgt hornsófi, ísskápur og þvottavél ásamt eldhúsborði. 

Leitað er eftir skilvísum og heiðarlegum leigjendum.

Leigufjárhæð á mánuði er kr. 180.000.-  auk rafmagns. Trygging er áskilin, sem nemur andvirði þriggja mánaða leigu í formi bankaábyrgðar auk meðmæla frá fyrri leigusala. 

Gæludýrahald er ekki leyft.

Upplýsingar eru ekki veittar í gegnum síma, áhugasamir sendi tölvupóst á netfangið hakon@valfell.is. Eigandi mun yfirfara umsóknir og haft verður samband við þá sem koma til greina.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 10725


<script src="https://jsc.adskeeper.com/r/s/rssing.com.1596347.js" async> </script>