
Björt og falleg, vel skipulögð 60 fm. íbúð á 2. hæð í litlu fjölbýlishúsi. Eigning er laus núþegar og leigist með húsgögnum til 31. maí 2019. Stofa, tvö svefnherbergi, gangur, eldhhús og baðherbergi.
Eldhúsið er með nýlegri innréttingu, litlum borðkrók, góðu skápaplássi, ísskáp og lítilli uppþvottavél. Frá eldhúsi er gengið út á svalir. Baðherbergi með sturtu, flísalagt í hólf og gólf. Parket á öllum gólfum nema baðherbergi. Þvottaaðstaða í risi. Hjólageymsla er ekki í húsinu.
Strætóstopp mjög nálægt og stutt á Hlemm, í matvöruverslanir og í Sundhöllina. Ókeypis bílastæði í götunni.
Óskað er eftir reglusömum leigjendum með meðmæli og fastar tekjur.
Eins mánaða trygging.
Íbúðin er reyklaus.
Dýrahald er ekki leyft.
Þvottaaðstaða í risi
Hjólageymsla er ekki í húsinu
Leigan er gefin upp.
Einungis tölvupóstum sem innihalda upplýsingar um starf, fjölskylduhagi og meðmæli verður svarað.