Quantcast
Channel: Íbúðahúsnæði til leigu
Viewing all articles
Browse latest Browse all 10725

Garðastræti 6, Miðbær/Vesturbær, 62 fm: 230.000 kr.

$
0
0

Til leigu, til afhendingar við undirritun leigusamnings.
Fasteignasalan Bær kynnir til leigu. Góð 2ja - 3ja herbergja íbúð í risi í snyrtilegu húsi við Garðastræti 6, 101 Reykjavík. Mjög góð staðsetning.

Íbúðin er skráð 62 fm en gólfflötur íbúðarinnar er meiri þar sem hluti hennar er undir súð (ca. 75 fm.)  Gott útsýni. Leiga 230 þús. á mánuði með hita. Þriggja mánaða trygging.

Ástand hússins að utan er gott og er það nýlega steinað. 
Við hlið hússins er læst port/húsasund þar sem hægt er að geyma t.d. reiðhjól.

Nánari lýsing.
Inngangur í íbúðina er á stigapalli á fjórðu hæð. Þar er flísalögð forstofa og flísalagður stigi upp í risið. Eldhús og stofaí opnu rými. Einföld eldri innrétting, ný eldavél og ísskápur og uppþvottavél fylgir. Flísar á gólfi. Málaður panell í lofti. Búr inn af eldhúsi. Svefnherbergi með fataskáp. Nýtt parket á gólfi. Svalirút frá herberginu. Flísalagt baðherbergi, baðkar með sturtuaðstöðu, innrétting,  tengi fyrir þvottavél og þurrkara á baði. Geymsla/aukaherbergi með tveimur nýlegum þakgluggum, ekki full lofthæð. Lítil geymsla og auk þess er víða geymslupláss og skápar undir súð. Í kjallara er sérgeymsla. Gluggar og gler almennt í góðu ástandi. Yfirfarið rafmagn. 

Nánari upplýsingar veitir Páll Guðjónsson lögg. fasteignasali s. 6994994
pall@fasteignasalan.is

Hringið eða sendið póst og bókið skoðun.

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 10725


<script src="https://jsc.adskeeper.com/r/s/rssing.com.1596347.js" async> </script>