Quantcast
Channel: Íbúðahúsnæði til leigu
Viewing all articles
Browse latest Browse all 10725

Grenimelur 26, Vesturbær, 109 fm: 340.000 kr.

$
0
0

Falleg 109.1 fermetra, 4 herbergja íbúð í Vesturbænum til leigu, eingöngu í langtímaleigu ( lágmark 2 ár ). Geymsla í kjallara og sameiginlegt þvottahús með 2 öðrum íbúðum. Hiti, rafmagns, fasteignagjöld og húseigandatrygging innifalin enn innbústrygging er ekki innifalin og er farið fram á að leigjandi taki sér slíka tryggingu.

Íbúðin er með fallegu eldhúsi með stórum tvöföldum ísskáp með franskri opnun, gas eldavél er í íbúðinni og svo er opið inní stofuna. 3 svefnherbergi, 2 barnaherbergi með skápum og svo hjónaherbergi með skápum. Snyrtilegt baðherbergi og geymsla í kjallara ásamt sameiginlegu þvottahúsi.

* Sérinngangur
* Upphituð innkeyrsla sem þessi íbúið hefur einkanot
* 3 svefnherbergi
* Sérsmíðaðir skápar
* Nýlegt eldhús
* Innbyggð uppþvottavél
* Gas eldavél
* Tvöfaldur ísskápur með klaka vél, vatnsvél og sodastream innbyggt
* Vape/reykingar alveg bannaðar
* Gæludýr eftir samkomulagi
* Hiti og rafmagn innifalið í leiguverði
* Geymsla innifalin, bílskúr ekki
* Leigusamning er þinglýst

Óskað verður eftir útprentun á upplýsingum frá CreditInfo ( aðgengilegt á Mitt CreditInfo ), staðfestingu á vinnu og einungis reglusamir, ábyrgir leigjendur með fastar tekjur koma til greina.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 10725


<script src="https://jsc.adskeeper.com/r/s/rssing.com.1596347.js" async> </script>