
Mjög vel skipulagt parhús að Ánalandi 2 auglýsist til útleigu. Fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi, tvær stofur, sjónvarpshol/-herbergi og rúmgott eldhús. Sólstofa og góður garður. Eignin leigist frá 1. júlí 2019 til 30 júní 2020.
Rekstrarumsjón ehf. fer með útleigu eignarinnar og sinnir öllum samskiptum fyrir hönd leigusala. Bókið skoðun með því að senda tölvupóst á umsjon@rekstrarumsjon.com eða hringja í síma 571 6770.
Neðri hæð: Aðgengi á lóð að eigninni er mjög snyrtilegt og er gengið inn í forstofu í gegnum aðaldyr. Forstofa er flísalögð með skápum og að innan er flísalagt hol. Til hægri eru tvær samliggjandi stórar stofur með parketi á gólfi. Opið er að hluta til úr annarri stofunni upp á aðra hæðinna. Stofurnar eru rúmgóðar og bjartar með arni. Rúmgóð flísalögð sólstofa er innan af stofum með hita í gólfi. Útgengt er út á suðurverönd og garð úr sólstofu. Eldhús er flísalagt í gólf með viðarinnréttingu með góðu skápaplássi auk þess sem rúmgóður borðkrókur er í eldhúsi. Baðherbergi er á neðri hæð og er það endurnýjað með flísalagðri sturtu, hvítri innréttingu og fallegri handlaug. Þá er rúmgott parketlagt svefnherbergi með skápum á neðri hæð.
Efri hæð: Vandaður beykistigi liggur úr holinu á neðri hæð upp á efri hæðina þar sem komið er upp á gott hol með parketi á gólfi. Tvö rúmgóð parketlögð svefnherbergi með skápum eru á efri hæð auk hjónaherbergis sem er rúmgott og parketlagt með góðu skápaplássi. Sjónvarpshol er parketlagt með útgengi út á svalir sem gæti nýst sem svefnherbergi. Opið er að hluta úr sjónvarpsholinu niður í aðra stofuna. Aðalbaðherbergi er á efri hæðinni og er það flísalagt með hvítri innréttingu og granítborplötu með góðu skápaplássi.
ATH. Eignin leigist án bílskúrs og geymslulofts.
Mánaðarleg leiga er 360.000 kr. og er greitt fyrsta virka dag hvers mánaðar fyrirfram. Tryggingafé skal samsvara þriggja mánaða leigu og skal greitt til leigusala til vörslu á meðan leigutíma stendur. Leigjandi greiðir hita og rafmagn.
Rekstrarumsjón ehf. I Dalshrauni 11, 220 Hafnarfirði
I umsjon@rekstrarumsjon.com I S: 571 6770






