Björt og góð 4ra herbergja íbúð á 2. hæð í fjölbýlishúsi við Stóragerði í Reykjavík. Stutt í verslanir skóla og alla þjónustu. Íbúðin leigist frá 1. ágúst næstkomandi í 12 mánuði og jafnvel lengur að þeim tíma liðnum.
Komið er inn í forstofu með góðum fataskáp. Innaf forstofu er lítil geymsla með hillum. Rúmgott endurnýjað eldhús með innbyggðri lítilli eldhúsuppvottavél og tengi fyrir venjulega þvottavél. Björt rúmgóð stofa með útgengi á suðusvalir. Þrjú svefnherbergi ásamt fataherbergi innaf hjónaherbergi. Eikarparket á gólfum. Flíslagt baðherbergi með sturtu. Loftljós í öllum herbergjum. Sérgeymsla og sameiginlegt þvottahebergi og hjóla- og vagnageymsla í kjallara. Öll sameign afar snyrtileg. Íbúðin er í ljósum lit.
Leiguverð er 190 þúsund krónur (fast verð) en inn í því er hitakostnaður íbúðar og húsgjald. Leigutaki greiðir rafmagn samkvæmt reikningi.
Farið er fram á bankatryggingu eða aðra sambærilega tyggingu fyrir 3ja mánaða leigu.
Reykingar ekki leyfðar í íbúðinni og sameign hússins og heldur ekki neins konar dýrahald.
Áhugasamir veiti upplýsingar um fjölskyldustærð og atvinnu.
Frekari upplýsingar veittar á g-j@simnet.is
↧
Stóragerði, Austurbær, 98 fm: 190.000 kr.
↧