Quantcast
Channel: Íbúðahúsnæði til leigu
Viewing all articles
Browse latest Browse all 10725

Kjarnagata 46 - ALMA, Akureyri, 83 fm: 181.500 kr.

$
0
0

Alma auglýsir eftir leigjendum í hlýlega þriggja herbergja íbúð við Kjarnagötu 46 sem er laus er til langtímaleigu. Leiguverðið er kr 181.500,-. á mánuði. Íbúðin er 83 m2 á 3.hæð. Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu. Úr eldhúsi er gengið út á svalir. Flísar eru á gólfum í forstofu, baðherbergi, þvottahúsi og geymslu. Parket er á gólfum í öðrum rýmum. Vandaðar innréttingar eru í eldhúsi og á baðherbergi. Fataskápar eru í svefnherbergjum og forstofu. Hiti og hússjóður er innifalinn í leigu en rafmagn er greitt af leigjanda. Íbúðin er staðsett á Akureyri.

Íbúðin er tilbúin til afhendingar þann 15. júlí n.k.

Alma býður nú upp á nýja tegund leigusamninga til allt að sjö ára á föstu leiguverði sem einungis er tengt við vísitölu neysluverðs. Samningarnir eru gerðir til árs í senn en að ári liðnu hefur leigjandi einhliða rétt á að framlengja samninginn um annað ár. Með þessum hætti getur leigjandi framlengt allt að sex sinnum eða í allt að sjö ár. Uppsagnarfrestur eru 6 mánuðir. Alma býður einnig upp á styttri leigusamninga með þriggja mánaða uppsagnarfresti sem henta þeim sem vilja leigja til skemmri tíma og hafa mikinn sveigjanleika. Áhugasamir eru beðnir um að senda okkur umsókn í gegnum heimasíðuna okkar, www.al.is. Endilega heyrið í okkur ef þið hafið einhverjar spurningar. Hlökkum til að heyra frá ykkur!


Viewing all articles
Browse latest Browse all 10725


<script src="https://jsc.adskeeper.com/r/s/rssing.com.1596347.js" async> </script>