
2ja herbergja íbúð til leigu í fallegu húsi við Vesturgötu.
Um er að ræða 70fm² eign sem skiptist í gang, stofu, svefnherbergi, eldhús, baðherbergi og litla geymslu.
Íbúðin er á jarðhæð með sérinngang bakatil ásamt aðgengi að palli.
íbúðin er öll nýlega standsett og er verið að setja upp nýtt eldhús
(myndir sýna gamla innréttingu).
Góð staðsetning miðsvæðis - Róleg einstefna og því ekki mikil umferð.
Laus 15. apríl 2020
Langtímaleiga
Áhugasamir vinsamlegast hafið samband við Karen Henný í síma 776 6916
eða sendið póst á karen@leigulistinn.is fyrir nánari upplýsignar og skoðun.