*STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU FYLGIR*
Til leigu góð 2ja herb. íbúð á jarðhæð, með stæði í bílageymslu, í litlu fjölbýli í Hlíðunum. Eignin er samtals 84 fm., auk stæðis í bílageymslu. Laus 1. september n.k. Langtímaleiga. Húsgögn og tæki sem verða við sýningu geta fylgt. Einnig er mögulegur aðgangur að neti og gervihnattaloftneti. Útgengt er í garð vestan- og austanmegin. Frábær staðsetning miðsvæðis, þar sem stutt er í Kringluna, verslunarkjarna Suðurvers, leikskóla, grunnskóla, menntaskóla og í göngufæri við háskóla, Öskjuhlíðina, Klambratún o.fl.
Leiga er kr. 220.000 á mánuði + rafmagn. Farið er fram á tryggingu vegna leigu, jafngildi 2ja - 3ja mánaða leigu, í formi bankaábyrgðar, ábyrgðar tryggingarfélags, eða peninga, auk eins mánaðar fyrirfram.
Nánari upplýsingar veitir:
Eggert Ólafsson í síma 893 1819, eggert@fasteignasalan.is
Nánari lýsing:
Sameiginlegur inngangur er í stigahúsá jarðhæð. Inngangur er í íbúðina frá jarðhæð og er gengið inn í anddyri/gang með fatahengi. Stofa er með útgengt á vesturverönd. Í eldhúsi er ljós innrétting með viðaráferð, flísum milli efri og neðri skápa, háfur yfir keramikhelluborði, uppþvottavél, sambyggður ísskápur og frystir og opið inn í stofu. Í baðherbergi er ljós innrétting með viðaráferð, baðkar með sturtustöng, upphengt salerni, handklæðaofn og flísar upp veggi. Herbergi er með fataskáp og útgengt á austurverönd í garði. Þvottaherbergi, með þvottavél og skolvask, er inn af gangi. Sérgeymsla og stæði í bílageymslu er í kjallara. Harðparket er á gólfum í íbúð, nema á baðherbergi og þvottaherbergi þar sem eru flísar.
Annað: Skv. Fasteignaskrá Íslands er íbúð 71,2 fm., geymsla 12,8 fm., eða samtals 84 fm., auk stæðis í bílageymslu. Ef leigjandi vill ekki hafa húsgögn sem fylgja, verða þau geymd í sérgeymslu eigarinnar.