
LIND Fasteignasala og Bjarni Blöndal hafa fengið til sölu fallega hæð og ris við Bernhöftstorfuna í hjarta Reykjavíkur. Íbúðin er í timburhúsi byggðu 1856 og því eitt elsta hús Reykjavíkur. Íbúðin skiptist í 3 svefnherbergi, 2 stórar stofur, eldhús, anddyri, 2 baðherbergi og opið rými í risi.
Nánari lýsing: Komið er inn á anddyri og úr því er stigi upp á 2. hæð. Tvær samliggjandi stofur með gólffjölum. Útsýni yfir borgina úr stofum. Inn af stofu er eldhús með ljósri viðarinnréttingu, Smeg gaseldavél, flísar á gólfi. 2. svefnherbergi á hæðinni. Svalir í suð-austur.
Í risi er opið rými, svefnherbergi og baðherbergi með baðkari, gólffjalir. Sameiginlegt þvottahús í kjallara. Eignin er laus til afhendingar strax og seljandi skoða ýmis eignaskipti.
Allar nánari upplýsingar veitir Bjarni Blöndal í síma 662-6163