
Laus er til langtímaleigu frá 8.apríl falleg 4ra herbergja íbúð á fyrstu hæð á besta stað í Vesturbænum. Íbúðin skiptist í stofu, rúmgott eldhús, hjónaherbergi og tvö barnaherbergi. Baðherbergi er flísalagt og með baðkari.
Hiti og hússjóður innifalinn í leigu.
Farið er fram á tveggja mánaða tryggingu, framvísun sakavottorðs, meðmæli frá fyrri leigusala og staðfestingu á reglulegum tekjum.
Gæludýr og reykingar eru ekki leyfð inni í íbúðunum.
Sendið tölvupóst á netfangið almenna@almennaleigufelagid.is fyrir frekari upplýsingar.
________________________________________________
Almenna leigufélagið býður langtímaleigu íbúðarhúsnæðis, hátt þjónustustig, öryggi og sveigjanleika. Félagið annast útleigu um 400 íbúða sem staðsettar eru vítt og breitt um höfuðborgarsvæðið.
Kynnið ykkur úrval lausra íbúða á heimasíðu félagsins: www.almennaleigufelagid.is/