
Falleg, nýuppgerð 4ra herbergja íbúð í Breiðholti er laus nú þegar til langtímaleigu.
Stofan er björt og rúmgóð með parketi á gólfi og útgengt út á svalir. Eldhús er með glæsilegum, dökkum innréttingum. Baðherbergi er flísalagt og með baðkari. Svefnherbergin eru þrjú, öll parketlögð.
Hiti og hússjóður innifalinn í leigu.
Farið er fram á tveggja mánaða tryggingu, framvísun sakavottorðs, meðmæli frá fyrri leigusala og staðfestingu á reglulegum tekjum.
Gæludýr og reykingar eru ekki leyfð inni í íbúðunum.
Sendið tölvupóst á netfangið almenna@almennaleigufelagid.is fyrir frekari upplýsingar.
________________________________________________
Almenna leigufélagið býður langtímaleigu íbúðarhúsnæðis, hátt þjónustustig, öryggi og sveigjanleika. Félagið annast útleigu um 400 íbúða sem staðsettar eru vítt og breitt um höfuðborgarsvæðið.
Kynnið ykkur úrval lausra íbúða á heimasíðu félagsins: www.almennaleigufelagid.is/