
Þriggja herbergja íbúð á þriðju hæð við Heiðarhvamm 7 er laus til langtímaleigu. Íbúðin skiptist í forstofu, hol, eldhús, stofu, baðherbergi og eitt svefnherbergi ásamt sér geymslu á fyrstu hæð hússins. Parket og flísar á öllum gólfum og ágæt innrétting í eldhúsi. Athugið að myndir eru ekki af umræddri íbúð en gólf og innréttingar eru sambærileg.
Hiti og hússjóður er innifalinn í leigu en rafmagn er greitt af leigutaka.
Leigusali fer fram á tveggja mánaða tryggingu, meðmæli frá fyrri leigusala, lánshæfismati frá Credit Info og staðfestingu á reglulegum tekjum.Gæludýr og reykingar eru ekki leyfð inni í íbúðinni. Endilega hafið samband ef þið hafið áhuga á að skoða íbúðina.
------------------------------------------------------------------
Almenna leigufélagið býður langtímaleigu íbúðarhúsnæðis, hátt þjónustustig, öryggi og sveigjanleika. Félagið annast útleigu um 1250 íbúða sem staðsettar eru vítt og breitt um höfuðborgarsvæðið og víðar um landið.
Kynnið ykkur úrval lausra íbúða á heimasíðu félagsins: www.al.is