Quantcast
Channel: Íbúðahúsnæði til leigu
Viewing all articles
Browse latest Browse all 10725

Kjarnagata 42, Akureyri, 83 fm: 175.000 kr.

$
0
0

Vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á þriðju hæð við Kjarnagötu 42. Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu. Úr eldhúsi er gengið út á svalir. Flísar eru á gólfum í forstofu, baðherbergi, þvottahúsi og geymslu. Plastparket er á gólfum í öðrum rýmum. Vandaðar innréttingar eru í eldhúsi og á baðherbergi. Fataskápar eru í svefnherbergjum og forstofu. Athugið að myndir eru ekki af umræddri íbúð en gólf og innrétting eru sambærileg.
Leigusali fer fram á tveggja mánaða tryggingu, meðmæli frá fyrri leigusala, lánshæfismati frá Credit Info og staðfestingu á reglulegum tekjum.
Hiti og hússjóður er innifalinn í leigu en rafmagn greiðist af leigutaka. Gæludýr og reykingar eru ekki leyfð inni í íbúðinni.

------------------------------------------------------------------
Almenna leigufélagið býður langtímaleigu íbúðarhúsnæðis, hátt þjónustustig, öryggi og sveigjanleika. Félagið annast útleigu um 1250 íbúða sem staðsettar eru vítt og breitt um höfuðborgarsvæðið og víðar um landið.
Kynnið ykkur úrval lausra íbúða á heimasíðu félagsins: www.al.is


Viewing all articles
Browse latest Browse all 10725


<script src="https://jsc.adskeeper.com/r/s/rssing.com.1596347.js" async> </script>