
Nýuppgerð og mjög vel skiuplögð 3. herbergja 64fm íbúð á jarðhæð á frábærum stað í gamla vesturbænum. Verið var að ljúka við að gera íbúðina upp að öllu leyti: nýtt parket, hurðar, klósett, sturta, gluggar og eldhúsinnrétting. Sérinngangur, og þvottaaðstaða í íbúðinni. Gengið er inn í lítið anddyri og þar fyrir innan er gangur. Út frá gangi eru sturtuherbergi, klósett, 2 svefnherbergi og stofa/eldhús í sama rýminu.
Nýtt parket og flísar á gólfum og ný eldhúsinnrétting. Uppþvottavél og ísskápur fylgja. Pláss fyrir þvottavél og þurrkara. Stutt í alla þjónustu, miðbæinn og Háskólann. Laus 10. mars - langtímaleiga. Hússjóður er innifalinn í leigu en hvorki hiti né rafmagn.
Áhugasamir vinsamlega sendi póst með stuttri kynningu á sjálfum sér. Farið er fram á 2 mánaða tryggingu. Form tryggingar er samkomulag