
LIND Fasteignasala kynnir: Eitt fallegasta og vandaðasta hús höfuðborgarsvæðisins. Sólvallagata 10 - 415 fm eign sem hefur verið tekin mikið í gegn að innan sem utan. Húsið er á stórri lóð 792,7 fermetrar.
Hús á þremur hæðum með tvennum stofum, 6 svefnherbergjum, fataherbergi, þremur baðherbergjum, glæsilegu eldhúsi, þvottahúsi og bílskúr. Rífleg lofthæð á öllum hæðum. Bílastæði á lóð fyrir sex bíla. Húsið er steinsteypt og var byggt árið 1931, arkitekt Einar Erlendsson fv. húsameistari ríkisins. Bókið skoðun: Hannes s699-5008 hannes@fastlind.is
Nánari lýsing:
Aðalhæð: Komið inní rúmgóða forstofu með upprunarlegu steingólfi. Tvær rúmgóðar stofur sem eru samliggjandi og tengjast eldhúsi. Parket á gólfi.
Eldhú: Mjög stórt, tvöfaldur ísskápur, Miele eldhústæki, Smeg gaseldavél. Kvartz borðplötur. Vandaðar flísar á gólfi.
Baðherbergið er rúmgott með fallegum og vönduðum innréttingum. Vola blöndunartæki. Mikil ofthæð, 290 cm.
Efri hæð: Rúmgott hjónaherbergi með stóru fataherbergi. Vandaðar innréttingar. Tvö rúmgóð svefnherbergi með fataskápum. Ullarteppi er á gólfum þriðju hæðar. Svalir til vesturs.
Baðherbergi með baðkari og sturtu. Vola blöndunartæki, mikil lofthæð, 280 cm.
Óskráð rými í risi hússins. Gólfflötur 81,4 fm. Mögulegt að bæta við stofu, koníaksstofu, bíóherbergi ofl.
Kjallari með mikilli lofthæð, um 270 cm. Þrjú svefnherbergi. Mögulegt væri að opna milli tveggja herbergjanna. Geymslur með tæknirými. Mjög stórt þvottahús. Vandaðar innréttingar.
Baðherbergi. Baðkar. Vola blöndunartæki, fallegar og vandaðar innréttingar.
Bílskúr og geymslur eru 43 fm að stærð.
Miklar endurbætur hafa farið fram og frágangur á öllu mjög vandaður. Haldið hefur verið í upprunalegt útlit hússins að utan sem innan. Samræmi er í efnisvali á innréttingum í öllu húsinu. Gólfhiti er í öllu húsinu.
Instabus hússtjórnarkerfi. Snjallstýring á hita og lýsingu ásamt öryggiskerfi. Öryggiskerfi frá Securitas fylgir sem inniheldur þjófavarnarkerfi, brunakerfi, skynjara fyrir gas og vatnsleka. Öryggismyndavélakerfi frá Vörn fylgir. Fermax dyrasímakerfi með myndavélum.
Fallegar steinflísar prýða þak hússins. Koparþakrennur. Stórt bílastæði fyrir a.m.k. 6 bíla og stórt hjólhýsi.
Allar nánari upplýsingar veitir: Hannes Steindórsson s.699-5008 hannes@fastlind.is