Alma auglýsir eftir leigjendum í fjögurra herbergja íbúð við Vesturgötu 50a sem laus er til langtímaleigu. Leiguverðið er kr 265.000,-. á mánuð.
Íbúðin er 86 fm2 og skiptist í stofu, þrjú svefnherbergi, eldhús og baðherbergi með sturtu. Hiti og hússjóður er innifalinn í leigu en rafmagn er greitt af leigjanda.
Íbúðin er tilbúin til afhendingar um miðjan júlí mánuð.
Íbúðin er staðsett í miðbæ Reykjavíkur þar sem stutt er í alla þjónustu. Við mælum sérstaklega með þessari eign fyrir fjölskyldur eða tvö pör saman.
Alma býður nú upp á nýja tegund leigusamninga til allt að sjö ára á föstu leiguverði sem einungis er tengt við vísitölu neysluverðs. Samningarnir eru gerðir til árs í senn en að ári liðnu hefur leigjandi einhliða rétt á að framlengja samninginn um annað ár. Með þessum hætti getur leigjandi framlengt allt að sex sinnum eða í allt að sjö ár. Uppsagnarfrestur eru 6 mánuðir. Alma býður einnig upp á styttri leigusamninga með þriggja mánaða uppsagnarfresti sem henta þeim sem vilja leigja til skemmri tíma og hafa mikinn sveigjanleika.
Áhugasamir eru beðnir um að senda okkur umsókn í gegnum heimasíðuna okkar, www.al.is. Endilega heyrið í okkur ef þið hafið einhverjar spurningar.
Hlökkum til að heyra frá ykkur!