Alma auglýsir eftir leigjendum í glæsilega fjögurra herbergja íbúð við Melasíðu 10 á Akureyri sem er laus til langtímaleigu. Leiguverðið er kr. 210.000,- á mánuði. Íbúðin er 94 fm2. Íbúðin skiptist í eldhús, baðherbergi, þvotta- og geymsluherbergi, stofu og þrjú svefnherbergi, auk sér geymslu á 1.hæð.
Hiti og hússjóður er innifalinn í leigu en rafmagn er greitt af leigjanda. Íbúðin er staðsett á Akureyri þar sem stutt er í alla þjónustu.
Alma býður nú upp á nýja tegund leigusamninga til allt að sjö ára á föstu leiguverði sem einungis er tengt við vísitölu neysluverðs. Samningarnir eru gerðir til árs í senn en að ári liðnu hefur leigjandi einhliða rétt á að framlengja samninginn um annað ár. Með þessum hætti getur leigjandi framlengt allt að sex sinnum eða í allt að sjö ár. Uppsagnarfrestur eru 6 mánuðir. Alma býður einnig upp á styttri leigusamninga með þriggja mánaða uppsagnarfresti sem henta þeim sem vilja leigja til skemmri tíma og hafa mikinn sveigjanleika. Áhugasamir eru beðnir um að senda okkur umsókn í gegnum heimasíðuna okkar, www.al.is. Endilega heyrið í okkur ef þið hafið einhverjar spurningar. Hlökkum til að heyra frá ykkur!